15.10.2007 | 14:17
Reisugillið
Helgin var í alla staði frábær. Sæmi, Marta og "tripple B" (Bára,Brynja og Björk) komu á föstudagskvöldið norður og voru að hjálpa okkur allan laugardaginn... Sæmi var SVO hlýðinn í vinnunni hjá mér að ég hugsa að ég panti hann bara aftur seinna.. við settum allt plastið á vesturpartinn í loftinu og það svo sem gekk alveg slysalaust nema ég að vísu fékk eitt rafmagnsrör í augað og einhver smá lítil óhöpp sem ég er bara búin að steingleyma. Marta sá um alla krakkana og gekk það að sjálfsögðu eins og í sögu...svo vel upp alin börn hjá okkur Siggi var í gluggalistunum enn einu sinni og er það nú farið að ganga aðeins hraðar eftir því sem listunum fækkar. Dóra og Steini komu ásamt strákunum sínum frá Sauðarkróki og kíktu á okkur og var frábært að sjá þau öllsömul..Strákarnir mötuðu Guffa af Brynjuís og fannst það ekkert leiðinlegt að láta hann gera kúnstir í staðin. Valli var líka hjá okkur allan daginn að handlanga og sópa.
Reisugillið byrjaði kl hálf 7 og við vorum á fullu þangað til.... þannig að eins og sést á myndunum náði maður ekki einu sinni að setja upp spariandlitið.. enda myndu iðnaðarmennirnir líklega ekki þekkja mig ef ég væri til höfð. Það var frábær mæting um kvöldið og gríðarlega gaman.. ég er enn brosandi og það segir sitt. Sýndist allir skemmta sér rosalega vel og þrátt fyrir að þetta væri nú kannski ekki beint hlýlegur partýstaður var Sigurður að keyra síðustu gesti heim um 2... hehe Ragna og Gunni stóðu sig eins og herforingjar í bílskúrnum á grillinu og sáu til þess að engir voru svangir Ég hugsa að það borgi sig ekkert fyrir mig að fara að segja neitt meira frá þessu gilli.. annað en það að ég þakka öllum sem sáu sér fært að koma fyrir magnað kvöld. hér eru nokkrar myndir. Vegna samninga okkar iðnaðarmannanna eru ekki byrtar myndir sem voru teknar eftir miðnætti..hehe
Við Siggi vorum mætt snemma á sunnudaginn í húsið á ný og byrjaði við að undirbúa múrarakomuna.. með því að setja plast fyrir alla glugga og hreinsa frá veggjum og þess háttar.. þetta tókst nú allt saman með stæl. Fólk svona tíndist þegar leið á daginn að ná í bílana sína frá kvöldinu áður og var það svona mis vel á sig komið en flestir þó mjög glaðir. Helga Gunnlaugs og Halla ásamt 2 vinkonum komu eldhressar þrátt fyrir að hafa verið fram á nótt að taka á móti gestunum mínum sem voru í gillinu og þurftu að komast á salerni..sumir komu víst oftar en aðrir því á klósettinu hennar Helgu var heitt og gott Það eru nú ekki allir grannar sem hefði látið bjóða sér þetta en Helga er EINSTÖK og á hún 1000 þakkir skildar. Ragna og Gunni komu líka með Magga frænda í heimsókn og hann svona ylmaði svo vel að mig langaði að éta hann.. ný kominn frá mallorca og hafði keypt sér þetta svakalega góða ylmvatn. Jói frændi í Græna húsinu kom líka og svo aftur með Líney og dóttur.
Athugasemdir
Hvernig var þetta með partýið; voru engir grillarar og framreiðslumenn ????
Ég bara spyr !!!! og til hamingju með daginn þótt ég sé ekki á myndunum og mín ekta ...........skekta.
Gunni frændi
Gunni frændi (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 16:57
Jæja það eru aldeilis fínar myndir (allar teknar í byrjun kvölds) he he , var ekki myndefni er líða tók á kvöldið ? (o; En til lukku með þetta allt saman og afmælið þitt í gær;o) kv. gamla
gamla (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 08:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.